Marga Schwarzmann
Viðskiptavinur Zinzino
Velkomin/n! Ég hef haft frábæra reynslu af vörunum mínum og ég held að þú munir elska þær líka. Láttu mig vita hvað þér finnst!
Omega-3/Omega-6 hlutfallið og hvers vegna þú ættir að láta mæla það
Í dag er matur oft mjög mikið unninn og við höfum úr fleiri innpökkuðum valkostum að velja en nokkru sinni fyrr. Ísskáparnir og frystarnir okkar eru stútfullir af máltíðum sem innihalda mikið af sykri og lítið af trefjum og það er mjög auðvelt að velja fæðu út frá hentugleika en ekki næringargildi. Þótt það sé erfiðara að finna næringarríkar máltíðir og forðast tómar hitaeiningar lifum við líka á tímum einstaklingsmiðaðrar næringar – þegar við getum nýtt vísindalega sönnuð fæðubótarefni til að mæta einstaklingsbundnum næringarþörfum okkar og koma líkamanum aftur í jafnvægi. Við þurfum ekki lengur að eyða tíma og kostnaði í að blanda saman réttu vítamínunum. Persónuleg próf fyrir næringarþörf upplýsir og valdeflir einstaklinginn.
Jákvæð áhrif Omega-3 og 6
Líkaminn þarf bæði Omega-3 og Omega-6 til að framkvæma mikilvæga starfsemi. Þetta eru lífsnauðsynlegar fitusýrur sem við verðum að fá úr fæðu og fæðubótarefnum þar sem líkaminn framleiðir þær ekki sjálfur.
Omega-3 er aðallega að finna í feitfiski, grænu laufgrænmeti og plöntum. Hægt er að fá Omega-6 úr kjöti, alifuglum og eggjum. Það er enginn skortur á Omega-6 í mataræði okkar. Áskorunin er fá nóg af Omega-3 og ná hlutfalli sem er í jafnvægi.
Omega hlutfallið í vestrænu mataræði
Til að frumuhimnurnar verði sem heilbrigðastar ættum við að hafa 3:1 jafnvægi á milli Omega-6 og Omega-3. Þetta hlutfall verndar frumurnar okkar gegn oxunarálagi, sem á sér stað þegar magn andoxunarefna verður of lágt og líkaminn verður ófær um að starfa eðlilega og getur valdið frumuskemmdum.
Góðu fréttirnar: Það er mögulegt að koma aftur jafnvægi á andoxunarefnin og stakeindirnar í líkamanum.
Hvað er ákjósanlegt Omega-3/Omega-6 hlutfall?
Ákjósanlega Omega-6:3 hlutfallið er 3:1. Fólk sem tekur ekki nóg af Omega-3 fæðubótarefnum getur verið með allt að 25:1 hlutfall. Jafnvel fólk sem borðar fisk reglulega og tekur Omega fæðubótarefni mælist langt frá 3:1 markmiðinu. Þetta er ekki fólkinu sjálfu að kenna heldur er frekar vísbending um gallað alþjóðlegt fæðukerfi og fæðubótarefni sem skortir mikilvæg efni til að næringarefnin frásogast rétt í líkamanum.
Hvað þýðir það ef Omega-6/Omega-3 hlutfallið er hátt?
Að koma aftur jafnvægi á Omega-6:3 hlutfallið ætti að vera forgangsverkefni. Líkami í jafnvægi þýðir eðlileg starfsemi heila, hjarta, ónæmiskerfis og frumna*.
Mataræði sem skortir Omega-3 fitusýrur getur haft neikvæð áhrif á heilsuna á ýmsa vegu. Staðreyndin er sú að flestir gera sér ekki grein fyrir því að líkamar þeirra eru í ójafnvægi.
Blóðprufa til að mæla Omega-6:3 hlutfallið (Omega BalanceTest)
Þetta er máttur einstaklingsmiðaðrar næringar. Þótt til séu ráðlögð dagleg gildi fitusýra eru þarfir okkar einstaklingsbundnar. Í stað þess að giska á hlutfall mælir Omega BalanceTest fitusýrustöðu einstaklinga á nákvæman hátt.
Um er að ræða blóðdropapróf frá alþjóðlega heilsufyrirtækinu Zinzino sem gefur nákvæma mælingu á 11 fitusýrum i blóðinu. Greiningin er framkvæmd af óháðum aðila og niðurstöðurnar eru algerlega nafnlausar. Prófinu fylgja persónulegar ráðleggingar og leiðbeiningar um hvernig þú getir endurheimt nauðsynlegt Omega-6:3 jafnvægi í líkamanum og haldið ferðalaginu í átt að betri heilsu áfram.
Hvernig hægt er að koma jafnvægi á Omega-3 og 6
Að koma jafnvægi á Omega-6:3 hlutfallið krefst tvíþættrar nálgunar. Fyrsta og mikilvægasta skrefið er að ganga úr skugga um að mataræðið þitt innihaldi hollar uppsprettur Omega-3. Ef þú þarft að brúa næringarbilið með fæðubótarefnum skaltu nota BalanceOil – hið einstaka fæðubótarefni okkar sem er náttúruleg blanda af hreinni fiskiolíu, extra virgin ólífuolíu með pólýfenólum og D3-vítamíni.
Það er vísindalega sannað að hún endurstillir Omega-6:3 hlutfallið á varfærinn hátt. BalanceOil státar af 15 EFSA-samþykktum jákvæðum heilsuáhrifum og umbreytir frumunum innan frá, frá höfði1 til hjarta2*.
Í bland við 120 daga BalanceOil áætlunina munu breytingar á mataræði þínu hjálpa til við að koma jafnvægi á líkamann á ný. Dragðu úr unnum, innpökkuðum matvælum og settu náttúrulegar uppsprettur Omega-3 í forgang. Til dæmis feitfisk, þörunga, jurtaolíur, spínat, rósakál, bláber og valhnetur. Þegar þú verslar í matinn skaltu halda þig við svæðið þar sem heilfæðið er að finna. Mældu stöðuna aftur með BalanceTest eftir 120 daga og sjáðu hversu nálægt þú kemst 3:1 hlutfallinu.
* Þessar fullyrðingar hafa ekki verið metnar af bandaríska matvæla- og lyfjaeftirlitinu (Food and Drug Administration). Þessari vöru er ekki ætlað að greina, meðhöndla, lækna eða koma í veg fyrir nokkurn sjúkdóm.
1. DHA contributes to the maintenance of normal brain
Il DHA contribuisce al mantenimento della normale funzione cerebrale. Questa indicazione può essere impiegata solo per un alimento che contiene almeno 40 mg di DHA per 100 g e per 100 kcal. L’indicazione va accompagnata dall’informazione al consumatore che l’effetto benefico si ottiene con l’assunzione giornaliera di 250 mg di DHA. L’assunzione di acido docosaesaenoico (DHA) da parte della madre contribuisce al normale sviluppo cerebrale del feto e dei neonati allattati al seno. Le donne in gravidanza e in allattamento vanno informate del fatto che l’effetto benefico è ottenuto con un’assunzione giornaliera di 200 mg di DHA in aggiunta alla dose giornaliera consigliata di acidi grassi omega-3 nell’adulto, che è pari a: 250 mg di DHA e acido eicosapentaenoico (EPA). L’indicazione può essere usata solo per alimenti che danno un apporto giornaliero di almeno 200 mg di DHA.
2. DHA and EPA contribute to the normal function of the heart
L’EPA e il DHA contribuiscono alla normale funzione cardiaca. Questa indicazione può essere impiegata solo per un alimento che è almeno una fonte di EPA e di DHA come specificato nell’indicazione FONTE DI ACIDI GRASSI Omega-3 di cui all’allegato del regolamento (CE) n. 1924/2006. L’indicazione va accompagnata dall’informazione al consumatore che l’effetto benefico si ottiene con l’assunzione giornaliera di 250 mg di EPA e di DHA.
Deila þessari síðu
Eða afrita hlekk