Cart
Shopping cart

Victoria Kumpfmüller

Zinzino Independent Partner

Velkominn! Ég er sjálfstætt starfandi ráðgjafi þinn, hér til að leiðbeina þér á heilsuferðalaginu þínu.

Heilsa • miðvikudagur, 29. mars 2023 • 4 min

Vöxtur og þroski barna

By Zinzino

Sérhver þáttur varðandi heilsu barna getur haft áhrif á vöxt og þroska barna til lengri tíma litið. Til eru þættir sem hafa slæm áhrif á heilsu barna. Tökum sem dæmi mikinn hita eða loftmengun — sem gera foreldrum erfiðara um vik að tryggja góða heilsu barna sinna og hefur þannig neikvæð áhrif á vöxt og þroska þeirra.

Næring og þorski barna

Næring gegnir mikilvægu hlutverki í þroska barna hvað varðar verndun þeirra gegn neikvæðum áhrifum. Góð næring hjálpar börnum að þróa öflugt ónæmiskerfi, svo þau fari ekki á mis við skemmtilega hreyfingu og félagslega örvun. Vandlega valin næring fyrir þroska barna er nauðsynleg fyrir heilsu þeirra svo þau hafi orku til að einbeita sér og vera skapandi.

Hvers vegna er næring barna mikilvæg fyrir þroska þeirra?

Góð næring barna er mikilvæg fyrir vöxt og almennan þroska vegna þess að hún leggur grunn að góðri heilsu og andlegri virkni fram á fullorðinsár. Mataræði barna — og næringargildi þess — hefur áhrif á orkustig þeirra og hefur þar með bein áhrif á getu þeirra til að taka þátt í íþróttum, skóla og tómstundum. Sérhver þáttur í þroska barna, þar með talið næring barna og líkamlegur þroski þeirra, hefur margvísleg heilsufarsleg áhrif.

Stig og áfangar heilaþroska

Heilaþroski barna á sér stað í stigum og áfangar einkennast af aukinni færni og sjálfstæði á hverju stigi. Heili ungbarna gerir þeim kleift að vera í sitjandi stellingu þegar þau þróa vöðva og samhæfingu. Þegar börn byrja að hjala og hafa samskipti gerir heilaþroski þeirra þeim kleift að byrja að skilja bendingar og hljóð. Heili smábarna er nógu þroskaður til að þau geti byrjað að ganga, klifra og jafnvel dansa. Sum teikna og læra að búa til list. Á skólaaldri gefur hreyfifærni barna til kynna góðan heilaþroska og þau geta stundað íþróttir og farið að klæða sig sjálf. Þegar þessum áföngum er náð öðlast börn sjálfsmeðvitund og þau öðlast betri skilning á sjálfum sér og heiminum í kringum sig á hverju stigi heilaþroska.

3kids-development.png

Næring fyrir heilbrigðan heilaþroska

Á hverju stigi heilbrigðs heilaþroska spyrjum við hvers vegna næring barna sé mikilvæg og hvernig við getum hjálpað þeim að ná þeim heilaþroska sem er nauðsynlegur til að ná hverju nýju tjáningar- og samhæfingarstigi. Börn nota hverja frumu í líkamanum til að ná tökum á nýrri færni. Með því að taka ákvarðanir um næringu taka foreldrar virkan þátt í heilsu barna sinna og sér í lagi heilaþroska þeirra. Matur sem börn þrá — sykurhlaðið sælgæti eða steikt og bragðgóð kolvetni — getur verið stór hluti af fæðuinntöku barns. Skorturinn á næringargildi þýðir hins vegar að orka barnsins verður óhjákvæmilega minni eftir upphaflega sykurvímu. Frekar en að laga sig að þeim skyndilegu toppum og lægðum sem unnin matvæli stuðla að í líkamanum munu góð næringarefni stöðugt styðja við þroska heilans og styrkja hann með því að þróa þrautseigan og heilbrigðan heila. Eins og atvinnuíþróttamenn sem eyða mörgum árum í að þróa hámarksfærni hjálpar góð næring fyrir heilaþroska barna, til lengri tíma litið, við að tryggja hámarksstyrk heilans.

Sjónþroski í árbernsku

Hvar liggja mestu möguleikarnir í heilbrigðum heilaþroska? Slæmar venjur í árbernsku geta hindrað sjónþroska barna. Börn þurfa heilbrigða sjón til að átta sig í heimi sem er fullur af upplýsingum. Nú þegar skjáir eru alls staðar — og freistingin til að horfa í langan tíma er alltaf til staðar — er erfitt að forðast augnþreytu og er það því ógn við heilsu barna. Í stuttu máli, því lengur sem heilbrigður heilaþroski og sjónheilbrigði eru vernduð í æsku gegn áreiti og álagi, því betra. Fyrir vikið mun sjón barna haldast góð út barnæskuna og langt fram á fullorðinsár.

Hvernig næring barna hjálpar til við þroska augna og sjónar

Hvernig getur þá góð næring barna hjálpað sjón þeirra? C- og E-vítamín stuðla að endurheimt augnvefs og geta komið í veg fyrir sýkingar. Omega-3 fitusýrur koma í veg fyrir augnþurrk sem getur verið óþægilegur A-vítamín spornar gegn augnþurrki og næturblindu. Þar sem offita og háþrýstingur hafa verið tengd við sjóntengda sjúkdóma hjá börnum getur góð næring hjálpað til við að koma í veg fyrir þessa kvilla og jafnvel stuðlað að sjón- og heilaþroska barna. Ávextir, grænmeti og einföld prótín eru mikilvægir þættir í góðri næringu barna, en mörg börn forðast að borða fisk. Fiskur er helsta uppspretta omega-3 fitusýra, þannig að BalanceOil Tutti Frutti frá Zinzino er auðveld og ljúffeng leið til að aðstoða við sjónþroska barna.1 Miðað við allt það sem þarf til að styðja við vellíðan barna er það léttir að vita að Omega-3 BalanceOil með Tutti Frutti bragði inniheldur nauðsynlegu næringarefnin fyrir sjónþroska barna.

Þótt margar áskoranir fylgi því að tryggja góða heilsu og heilaþroska barna, þá eru til úrræði til að styðja við fullnægjandi næringu fyrir þroska barna. Heilinn og líkaminn eru tengdir. Vöxtur, þroski og vellíðan barna er allt mikilvægir þættir fyrir heilsu barna. Að tryggja barninu þínu fullnægjandi næringu núna mun skila langvarandi ávinningi sem barnið nýtur góðs af ævilangt. BalanceOil Tutti Frutti hjálpar foreldrum að gera allt það sem þau geta til að tryggja góðan heilaþroska2 og almennan líkamlegan þroska3 og sjónþroska4 barnanna sinna.

1. EFSA, Docosahexaenoic acid (DHA

EFSA, moderns intag av Dokosahexaensyra (DHA) bidrar till normal utveckling av hjärnan hos fostret och spädbarn som ammar, i Art.14(1)(b) – påståenden om barns hälsa och utveckling. Information ska ges till gravida och ammande kvinnor om att den gynnsamma effekten uppnås vid ett dagligt intag på 200 mg DHA utöver det rekommenderade dagliga intaget av omega-3-fettsyror för vuxna, dvs. 250 mg DHA och EPA (eikosapentaensyra). Påståendet får endast användas om livsmedel som ger ett dagligt intag på minst 200 mg DHA.

2. EFSA, Essential fatty acids

EFSA, Essentiella fettsyror behövs för normal tillväxt och utveckling hos barn., i Art.14(1)(b) – påståenden om barns hälsa och utveckling. Information till konsumenten att den gynnsamma effekt som erhålls vid ett dagligt intag av 2 g α-linolensyra (ALA) och ett dagligt intag av 10 g linolensyra (LA).

3. DHA bidrar till att bibehålla normal synförmåga

DHA bidrar till att bibehålla normal synförmåga. Påståendet får endast användas om livsmedel som innehåller minst 40 mg DHA per 100 g och per 100 kcal. För att hälsopåståendet ska få användas måste konsumenten informeras om att den gynnsamma effekten uppnås vid ett dagligt intag på 250 mg DHA. Intag av dokosahexaensyra (DHA) bidrar till att synen utvecklas normalt hos spädbarn upp till 12 månaders ålder. Konsumenten ska informeras om att den gynnsamma effekten uppnås med ett dagligt intag av 100 mg DHA. När påståendet används om tillskottsnäring, ska livsmedlet innehålla minst 0,3 % av de totala fettsyrorna som DHA.

4. EFSA, Docosahexaenoic acid (DHA) maternal intake contributes to the normal brain development of the foetus

EFSA, moderns intag av Dokosahexaensyra (DHA) bidrar till normal utveckling av hjärnan hos fostret och spädbarn som ammar, i Art.14(1)(b) – påståenden om barns hälsa och utveckling. Information ska ges till gravida och ammande kvinnor om att den gynnsamma effekten uppnås vid ett dagligt intag på 200 mg DHA utöver det rekommenderade dagliga intaget av omega-3-fettsyror för vuxna, dvs. 250 mg DHA och EPA (eikosapentaensyra). Påståendet får endast användas om livsmedel som ger ett dagligt intag på minst 200 mg DHA.