Dagmar Silna
Zinzino Independent Partner
Velkominn! Ég er sjálfstætt starfandi ráðgjafi þinn, hér til að leiðbeina þér á heilsuferðalaginu þínu.
Uppskrift að æðisgengnum krydduðum vegan goji- og jarðarberjadjús með 3 leynilegum hráefnum
Þegar fólk spyr þig hvort þú sért meira fyrir krydd eða sætindi er rétta svarið BÆÐI! Því hvernig er hægt að ætlast til að maður geti valið á milli bragðsterkra framandi krydda og ómótstæðilegra sætinda. Ef þú kinkar kolli og segir, mm-hhmm, mun þessi blandaði vegan berjadjús svo sannarlega hrista upp í morgunrútínunni þinni.
Byrjaðu daginn með fullan maga af hollustu. Þurrkaðu rykið af blandaranum og gríptu þessi vegan hráefni fyrir ávaxtadjús í næstu matarinnkaupaferðinni.
Hér er hráefnalistinn fyrir goji- og jarðarberjadjúsinn þinn
- 250 ml af mjólk sem er ekki kúamjólk
- 250 ml af jarðarberjum
- 1 þroskaður banani (frosinn)
- 20 ml af gojiberjum (sem eru látin liggja í bleyti)
- 20 ml af möndlusmjöri
- 2,5 ml af möluðum kanil
- 1,25 ml af möluðu engifer
- 1 daðla án steins
- Kreistingur af ferskum sítrónusafa
- Dálítið af sjávarsalti
- 2 ausur af ZinoBiotic+
- 2 hylki af Xtend+
- Daglegi skammturinn þinn af Vegan Lemon BalanceOil+.
Ekki aðdáandi möndlusmjörs? Þá getur þú skipt því út fyrir kókossmjör. Þú skalt láta gojiberin liggja í bleyti áður en þú setur þau út í drykkinn svo bragðið verði enn betra. Þú munt elska áferðina sem þau gefa þessum vegan ávaxtadjús. Settu gojiberin bara í vatn í krukku og geymdu þau í ísskápnum svo þú eigir birgðir í djúsa í heila viku.
Gojiber hafa verið notuð í lækningaskyni í yfir 2.000 ár til auka andoxunarvirkni í líkamanum. Beta-karótín, sem veitir gojiberjum appelsínugula litinn, styður við ýmsa starfsemi í líkamanum. Bæði kanill og engifer hafa verið notuð í matreiðslu frá örófi alda og er það sennilega vegna hins mikla magns andoxunarefna sem þau innihalda.
ZinoBiotic+, Xtend+ og BalanceOil+ gera svo þennan kryddaða og sæta gojiberjadrykk enn hollari en ella
Ef þessi fríði flokkur vegan hráefna dugar þér ekki til að byrja daginn á réttum nótum skaltu bara bíða þar til þú bætir við síðustu þremur innihaldsefnunum. Tvær ausur af ZinoBiotic+ veita þér átta náttúruleg trefjaefni sem efnaskiptast í ristlinum til að styðja við vöxt góðgerla. Það bætir jafnvægi kólesteróls, blóðsykurs og örveruflórunnar, og gerir meltingarveginn almennt heilbrigðari*.
Síðan skaltu opna tvö Xtend+ hylki til að bæta við 22 nauðsynlegum vítamínum og steinefnum auk hreinsaðra 1-3, 1-6 betaglúkana. Það mun veita þér aukna orku, stuðla að eðlilegu ónæmiskerfi, veita nauðsynleg næringarefni fyrir vöxt og viðgerðir vefja og styðja við starfsemi beina og liðamóta*. Þú færð ekki betri undirbúning fyrir ræktina.
Og að lokum, ekki gleyma innihaldsefninu sem setur punktinn yfir i-ið, BalanceOil+.
Það er fæðubótarefni sem er auðugt af pólýfenólum, omega-3 og D3-vítamíni og viðheldur hinu afar mikilvægu Omega-6:3 hlutfalli þínu á öruggan hátt. Þökk sé 15 jákvæðum heilsufarsáhrifum sem eru viðurkennd af EFSA (heili, hjarta, ónæmi og frumumyndun) heldur BalanceOil+ líkamanum þínum í jafnvægi allan daginn.
Að gæða þér á þessum kryddaða og sæta vegan djús er það besta sem þú getur gert á hverjum degi til að bæta heilsuna frá toppi til táar.
* Þessar fullyrðingar hafa ekki verið metnar af bandaríska matvæla- og lyfjaeftirlitinu (Food and Drug Administration). Þessari vöru er ekki ætlað að greina, meðhöndla, lækna eða koma í veg fyrir nokkurn sjúkdóm.
Deila þessari síðu
Eða afrita hlekk