Cart

Clemens Richle

Zinzino Independent Partner

Velkominn! Ég er sjálfstætt starfandi ráðgjafi þinn, hér til að leiðbeina þér á heilsuferðalaginu þínu!

Þín karfa

Colombian Espresso (Zinzino)

Colombie Supremo er búið til úr bestu Arabica-baunum Kólumbíu sem vaxa á hásléttunni 5000 metra yfir sjávarmáli. Kaffið hefur ljúfa og milda fyllingu ásamt örlítilli beiskju. Sýrustigið er hærra og myndar ávaxtakeim og örlítinn ilm af rauðum berjum, sólberjum og brómberjum en eftirbragðið er þó ekki sterkt. Við mælum með að kaffið sé drukkið eftir mat með eftirréttum, ís eða sætabrauði með rauðum ávöxtum og berjum. 

Innihald:16 púða

Tilboðsverð
15 € (Sparaðu 29 %) (1,00 cr)
Smásöluverð
21 €

Viltu stóran eða lítinn espressó?
Við bjóðum upp á púða sem henta fyrir stutta og langa espressó. Kaffimagnið sem fæst úr einum púða, 4–10 cl, fer eftir því hvernig baunirnar eru malaðar. Púðar fyrir stutta espressó innihalda mjög fínmalað kaffi sem er þéttpakkað og vatnið er svolitla stund að seytla í gegnum þá, en púðar fyrir langa espressó innihalda meira grófmalað kaffi sem vatnið á auðveldara með að renna í gegnum.

Mismunandi baunir, mismunandi kaffi
Kaffi er í grunninn gert úr tveimur baunategundum, Arabica og Robusta. Arabica-baunir eru bestu baunirnar og þær gefa af sér milt og bragðmikið kaffi. Arabica-baunir vaxa í mikilli hæð í hitabeltinu. Við veljum 100% Arabica-baunir fyrir mismunandi kaffiblöndur og bragðtegundir. Robusta-baunir gefa kaffinu sterkara og beiskara bragð og þeim er aðeins blandað við sterkustu espressókaffiblöndurnar.

Kaffiframleiðandinn
Kaffiframleiðandi okkar er Rombouts kaffibrennslan sem stofnuð var í Antwerpen, Belgíu, árið 1896. Malongo er systurfyrirtæki Rombouts, í Nice í Frakklandi. Fyrirtækið er enn í eigu fjölskyldunnar sem er stolt af hefðum sínum og ástríðu fyrir kaffi. Markmið þess er að bjóða upp á kaffi í hæsta gæðaflokki í gegnum sérvalda framleiðendur frá litlum plantekrum – helst Fairtrade– með einstökum bragðgæðum. Baunirnar eru handtíndar og framleiddar með blautu aðferðinni. Hver einasti kaffisekkur er skoðaður og baunirnar eru síðan hægristaðar og þeim pakkað inn. Þetta hefur gert það að verkum að meðal viðskiptavina þeirra er konungsfjölskyldan í Belgíu ásamt virtustu hótelum og flugvöllum í heimi eins og í París, New York, Tókýó og Dubai.

Fairtrade
Rombouts & Malongo var fyrsta kaffibrennslan til að hefja samstarf við Fairtrade árið 1992 og hefur síðan þá verið leiðandi kaffibrennsla fyrir Fairtrade-kaffi í Evrópu. Hún skuldbatt sig með einstökum hætti við Fairtrade-búskap strax frá upphafi og viðheldur persónulegum og nánum samskiptum við alla framleiðendur sína sem hún heimsækir og skoðar á hverju ári. Venjulegir framleiðendur kaupa aðeins baunirnar. Frá árinu 2007 hefur Rombouts & Malongo rekið Malongo-stofnunina sem hefur það að markmiði að vinna að og styðja verkefni í heilbrigðisþjónustu, vernd barna og sambærileg félagsleg málefni í samvinnu við Fairtrade-stofnanir á hverjum stað. Árlega styður hún mismunandi verkefni Fairtrade-samstarfsaðila hvað varðar vistvæna ræktun og samgöngukerfi á staðnum.

Umhverfisvænn púði
Það er ekki nóg að kaffið komi frá vottuðum plantekrum. Eftir það er kaffið brennt og því pakkað í púða úr óbleiktum síupappír og honum pakkað í stakar umbúðir gerðar úr PET. PET er sem stendur umhverfisvænsta efnið sem haldið getur ilmgæðunum inni í langan tíma. Ný gerð af stökum umbúðum úr pappír er næsta skrefið. Þær hafa nýlega verið kynntar til leiks og munu koma í staðinn fyrir ílát úr PET á komandi árum.