Cart
Þín karfa

Colombian Espresso, big pack (Zinzino)

Colombie Supremo er búið til úr bestu Arabica-baunum Kólumbíu sem vaxa á hásléttunni 5000 metra yfir sjávarmáli. Kaffið hefur ljúfa og milda fyllingu ásamt örlítilli beiskju. Sýrustigið er hærra og myndar ávaxtakeim og örlítinn ilm af rauðum berjum, sólberjum og brómberjum en eftirbragðið er þó ekki sterkt. Við mælum með að kaffið sé drukkið eftir mat með eftirréttum, ís eða sætabrauði með rauðum ávöxtum og berjum. Kaffið er selt í pökkum sem innihalda 16 púða og í Big-Pack kössum sem innihalda 192 púða.

Tilboðsverð
135 € (Sparaðu 46 %) (10,00 cr)
Smásöluverð
252 €

ZINZINO ESPRESSO frá

ROMBOUTS & MALONGO:

Vörulína Zinzino af kaffipúðum er framleidd af Rombouts & Malongo sem eru ein fremsta kaffibrennsla Evrópu og var stofnsett í Antwerpen, Belgíu árið 1896. Malongo er systurfyrirtæki þess í Nice í Frakklandi. Fyrirtækið er enn í eigu stofnfjölskyldunnar sem er stolt af hefðum sínum og ástríðu fyrir kaffi.

Við notum aðeins bestu Arabica-baunirnar í kaffið okkar. Plantekrur sem eru hátt uppi í fjöllunum hafa oft mjög góð skilyrði til að ná fram betra bragði og meiri gæðum. Við handtínum aðeins ber sem eru á réttu þroskastigi til að ná fram rétta bragðinu. Ef við þurfum að gera kaffið bragðsterkara notum við einnig Robusta-baunir af bestu gerð. Að lokum hægristum við baunirnar í 20 mínútur við lágan hita, um 230 °C, til að ná fram öllum ilminum.

Við bjóðum upp á púða sem henta fyrir stutta espressó, 4–10 cl, og langa espressó, 10–14 cl. Kaffimagnið sem fæst úr hverjum púða fer eftir því hvernig baunirnar eru malaðar.

Púðarnir eru seldir 16 saman í pakka eða í stórum kössum sem innihalda 192 púða.